Umhverfi nýsköpunarfyrirtækja á Íslandi er samstarfsverkefni Northstack, Gallup og Tækniþróunarsjóðs. Markmið verkefnisins er að kortleggja viðhorf forsvarsfólks nýsköpunarfyrirtækja til umhverfis nýsköpunar á Íslandi. Á þessari síðu eru upplýsingar um verkefnið, tilurð þess og markmið, aðstandendur, og niðurstöður. Verkefnið var styrkt af Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti.
Við völdum að birta gögnin hrá og án túlkunar hér á Nýsköpunarlandið.is, til að gefa umhverfinu og öllum þátttakendum þess aðgang, og lýsum bakgrunni og fyrirvörum eins vandlega og við getum í ítarlegri umfjöllun um verkefnið, til að stuðla að betri greiningum meðal þeirra sem hafa áhuga.
Fyrirvarar
Mikilvægt er að hafa í huga að könnunin er einmitt það, könnun á skoðun og tilfinningu þeirra sem reka fyrirtæki og hafa sótt um styrk í Tækniþróunarsjóð á tímabilinu 2017-2019. Skoðið ítarlegri umfjöllun um verkefnið fyrir frekari upplýsingar.
Frekari upplýsingar
Frekari upplýsingar veitir Kristinn Árni L. Hróbjartsson, stofnandi Northstack – kristinn@northstack.is
Niðurstöður
Hér á eftir fylgja helstu niðurstöður könnunarinnar. Athugið að ekki eru niðurstöður við öllum spurningum birtar. Ástæður þess má finna í “Um verkefnið – Lærdómur og næstu skref.”
Helstu niðurstöður
Viðhorf til nýsköpunar er almennt jákvætt:
- Þátttakendur voru sjálfir jákvæðir gagnvart framtíð nýsköpunar á Íslandi
- Þátttakendur töldu að almenningur á Íslandi hefði almennt gott viðhorf gagnvart nýsköpun

Séríslenskt er óvinsælt:
- 73.5% töldu það að hafa séríslenskan gjaldmiðil hafa mjög eða frekar neikvæð á hrif á rekstur síns fyrirtækis.

Stofnun fyrirtækja er einföld, en umhverfið má bæta fyrir alþjóðleg nýsköpunarfyrirtæki:
- Tæplega 80% voru sammála því að það væri auðvelt að stofna fyrirtæki á Íslandi

- Á hinn bóginn, var meirihlutinn ósammála því að Ísland væri góður staður fyrir alþjóðleg nýsköpunarfyrirtæki eða fyrirtæki í örum vexti.

Aðgengi að mannauði misgott:
- Tæplega 40% töldu gott eða mjög gott aðgengi að innlendum mannauði með rétta reynslu og þekkingu.

- Rúmlega 60% töldu gott eða mjög gott aðgengi að erlendum mannauði með rétta reynslu og þekkingu.

- Erlendir sérfræðingar störfuðu hjá 40.7% fyrirtækja.

Vitund um ívilnanir er misgóð:
- 51.2% vissu ekki að erlendir sérfræðingar sem flytja til Íslands eigi möguleika á skattaafslætti

- 22.8% vissu ekki af skattafrádrætti vegna kostnaðar tengdum rannsóknum og þróun

Fjármögnunarkerfið stendur fólki fyrir þrifum:
- 65.6% telja það erfitt eða mjög erfitt að fjármagna fyrirtækið með aðkomu innlendra fjárfesta
- Meðal helstu ástæðna eru talin upp lítið framboð á fjárfestum, óþolinmæði/áhættufælni fjármagns, og erfitt aðgengi að fjárfestum

- 58.8% telja það erfitt eða mjög erfitt að fjármagna fyrirtækið með aðkomu erlendra fjárfesta.
- Meðal helstu ástæðna eru talin upp gjaldmiðillinn, og fjarlægð, skortur á tengslum og erfitt aðgengi.

- 61% svarenda telja þá bankaþjónustu sem í boði er á Íslandi henta illa eða mjög illa fyrir nýsköpunarfyrirtæki.

Mismunandi framtíðarsýn:
- 69.9% svarenda hafa þá framtíðarsýn að reka fyrirtækið til frambúðar með hagnaði, en rétt um 30% sjá fyrir sér að selja eða skrá á markað.

- 60% svarenda eru annaðhvort nú þegar starfandi á erlendum mörkuðum eða stefna þangað á næstu 12 mánuðum. 7.4% svarenda sjá ekki fyrir sér að herja á erlenda markaði.

Niðurstöður í heild
Einnig má nálgast gögnin á Excel formi hér fyrir neðan:
Vinsamlega getið heimilda.